Neyðarkallinn seldur í kvöld

Neyðarkallinn seldur í kvöld Árleg fjáröflun björgunarsveitarinnar fer fram í dag með sölu á Neyðarkallinum, sem að þessu sinni er lyklakippa í

Fréttir

Neyðarkallinn seldur í kvöld

Árleg fjáröflun björgunarsveitarinnar fer fram í dag með sölu á Neyðarkallinum, sem að þessu sinni er lyklakippa í eftirmynd rústabjörgunarmanns. Unglingadeildin Smástrákar munu ganga í hús í kvöld frá klukkan 19:00 og selja gaurinn sem kostar aðeins 1.500kr.

 

Ekki þarf að brýna fyrir neinum það mikilvæga hlutverk sem björgunarsveitir okkar landsmanna gegna. Ungliðahreyfingin er ekki síður mikilvæg en þar ganga unglingarnir gegnum krefjandi og skemmtilega þjálfun á flestum sviðum björgunaraðgerða. Í unglingadeildinni læra meðlimir allt frá skyndihjálp að rústabjörgun, snjóflóðabjörgun og sjóbjörgun.


Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst