Neyðarkallinn seldur í kvöld
Árleg fjáröflun björgunarsveitarinnar fer fram í dag með sölu á Neyðarkallinum, sem að þessu sinni er lyklakippa í eftirmynd rústabjörgunarmanns. Unglingadeildin Smástrákar munu ganga í hús í kvöld frá klukkan 19:00 og selja gaurinn sem kostar aðeins 1.500kr.
Ekki þarf að brýna fyrir neinum það mikilvæga hlutverk sem björgunarsveitir okkar landsmanna gegna. Ungliðahreyfingin er ekki síður mikilvæg en þar ganga unglingarnir gegnum krefjandi og skemmtilega þjálfun á flestum sviðum björgunaraðgerða. Í unglingadeildinni læra meðlimir allt frá skyndihjálp að rústabjörgun, snjóflóðabjörgun og sjóbjörgun.




Athugasemdir