Rækjuvinnsla Ramma
sksiglo.is | Almennt | 30.12.2011 | 16:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 416 | Athugasemdir ( )
Rækjuvinnsla Ramma hf. á Siglufirði gekk vel á árinu. Að jafnaði unnu á milli 20 og 30 manns í verksmiðjunni og framleiðsla var í takt við áætlanir. Verð á pillaðri rækju hækkaði nokkuð á árinu og eftirspurn hefur verið góð.
Veiðarnar yfir vetrarmánuðina eru erfiðar, nú sem fyrr, og hefur frosið hráefni af erlendum uppruna verið notað til þess að brúa bilið í vinnslunni. Nú bregður svo við að mjög lítið framboð er af erlendri “iðnaðarrækju” og því má búast við að einhverjir dagar falli úr vinnslu á fyrstu dögum ársins. Stefnt er að því að vinna álíka mikið magn af rækju á árinu 2012 og unnið var á árinu 2011.Heimasíða Ramma
Athugasemdir