Rækjuvinnsla Ramma

Rækjuvinnsla Ramma Rækjuvinnsla Ramma hf. á Siglufirði gekk vel á árinu. Að jafnaði unnu á milli 20 og 30 manns í verksmiðjunni og framleiðsla var í

Fréttir

Rækjuvinnsla Ramma

Rækjuvinnsla Ramma hf. á Siglufirði gekk vel á árinu. Að jafnaði unnu á milli 20 og 30 manns í verksmiðjunni og framleiðsla var í takt við áætlanir. Verð á pillaðri rækju hækkaði nokkuð á árinu og eftirspurn hefur verið góð.

Veiðarnar yfir vetrarmánuðina eru erfiðar, nú sem fyrr, og hefur frosið hráefni af erlendum uppruna verið notað til þess að brúa bilið í vinnslunni. Nú bregður svo við að mjög lítið framboð er af erlendri “iðnaðarrækju” og því má búast við að einhverjir dagar falli úr vinnslu á fyrstu dögum ársins. Stefnt er að því að vinna álíka mikið magn af rækju á árinu 2012 og unnið var á árinu 2011.

Heimasíða Ramma


Athugasemdir

30.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst