Rættist vel úr reiðhjóladegi Lions
Ýmislegt geta félagasamtök gert til að afla sér fjár og bryddaði Lionsklúbbur Siglufjarðar uppá þeirri nýung um helgina að bjóða fólki aðstoð við reiðhjólaviðgerðir. Siglfirðingar voru ánægðir með uppátækið og fúsir til að nýta sér þessa þjónustu klúbbsins og styrkja þannig í leiðinni við góð málefni.
Klúbburinn stefnir að því að hafa þetta árlegan viðburð og mun hann bæði reyna að velja betra veður og vera fyrr á ferðinni með þessa þjónustu sögðu félagarnir. Meðlimir Lions vildu koma á framfæri þökkum fyrir veittan stuðning til þeirra sem komu með hjólin sín í yfirhalningu og eins til SR fyrir að útvega þeim varahluti til verksins.






Athugasemdir