Rættist vel úr reiðhjóladegi Lions

Rættist vel úr reiðhjóladegi Lions Ýmislegt geta félagasamtök gert til að afla sér fjár og bryddaði Lionsklúbbur Siglufjarðar uppá þeirri nýung um

Fréttir

Rættist vel úr reiðhjóladegi Lions

Reiðhjóladagur Lions. Ljósmyndari; GK
Reiðhjóladagur Lions. Ljósmyndari; GK

Ýmislegt geta félagasamtök gert til að afla sér fjár og bryddaði Lionsklúbbur Siglufjarðar uppá þeirri nýung um helgina að bjóða fólki aðstoð við reiðhjólaviðgerðir. Siglfirðingar voru ánægðir með uppátækið og fúsir til að nýta sér þessa þjónustu klúbbsins og styrkja þannig í leiðinni við góð málefni.

Útlitið var ekki gott um morguninn en veðrið var þannig að við reiknuðum ekki með að margir mundu mæta sagði Guðmundur Friðrik þegar Siglo.is náði af honum tali. En það rættist heldur betur úr þessu eftir hádegi þegar það tók að rigna hjólum. Þrátt fyrir hálf leiðinlegt veður og mikla rigningu fékk klúbburinn 6 hjól í yfirhalningu þar sem var hert á bremsum, skipt um teina og gírar stilltir svo fátt eitt sé nefnt.

 

Klúbburinn stefnir að því að hafa þetta árlegan viðburð og mun hann bæði reyna að velja betra veður og vera fyrr á ferðinni með þessa þjónustu sögðu félagarnir. Meðlimir Lions vildu koma á framfæri þökkum fyrir veittan stuðning til þeirra sem komu með hjólin sín í yfirhalningu og eins til SR fyrir að útvega þeim varahluti til verksins.


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst