Rafmagnsleysi á Siglufirði

Rafmagnsleysi á Siglufirði Rarik menn á Siglufirði þurftu að vaka lengi aðfaranótt laugardags en klukkan 2.00 þá nótt sló út rafmagni í bænum. Erfitt

Fréttir

Rafmagnsleysi á Siglufirði

Bruni í spennistöð við SR. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson
Bruni í spennistöð við SR. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson
Rarik menn á Siglufirði þurftu að vaka lengi aðfaranótt laugardags en klukkan 2.00 þá nótt sló út rafmagni í bænum. Erfitt reyndist að finna hvaðan bilunin kom og ekki komu menn auga á hana fyrr en klukkan 11.00 á laugardagsmorgninum þegar ekið var framhjá húsnæði SR, en reyk hafði þá lagt út frá spennistöð þar.

Ekki er vitað hvað orsakaði bilunina en málið er í rannsókn. Augljóst er þó að um töluvert tjón er að ræða þar sem stórir og miklir rofar brunnu yfir ásamt stofnköplum að byggingunni.

Tveir rofar brunnir í spennistöð við SR sem er svört af sóti í dag.

 

Mikill hiti hefur myndast í rýminu en sjá má að skermur á ljósi fyrir ofan rofana hafði bráðnað


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst