Rafmagnsleysi á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 10.05.2009 | 11:59 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 541 | Athugasemdir ( )
Rarik menn á Siglufirði þurftu að vaka lengi aðfaranótt laugardags en klukkan 2.00 þá nótt sló út rafmagni í bænum. Erfitt reyndist að finna hvaðan bilunin kom og ekki komu menn auga á hana fyrr en klukkan 11.00 á laugardagsmorgninum þegar ekið var framhjá húsnæði SR, en reyk hafði þá lagt út frá spennistöð þar.
Ekki er vitað hvað orsakaði bilunina en málið er í rannsókn. Augljóst er þó að um töluvert tjón er að ræða þar sem stórir og miklir rofar brunnu yfir ásamt stofnköplum að byggingunni.
Tveir rofar brunnir í spennistöð við SR sem er svört af sóti í dag.
Mikill hiti hefur myndast í rýminu en sjá má að skermur á ljósi fyrir ofan rofana hafði bráðnað
Athugasemdir