Rafmagnsmælarnir hans Adda Óla

Rafmagnsmælarnir hans Adda Óla Eins og Siglfirðingar vita flest allir þá var Arnar Ólafsson að vinna hjá Rafveitum Ríkisins til fjölda ára og síðar hjá

Fréttir

Rafmagnsmælarnir hans Adda Óla

Eins og Siglfirðingar vita flest allir þá var Arnar Ólafsson rafvirki að vinna hjá Rafveitum Siglufjarðar til fjölda ára og síðar hjá Rarik. Arnar hætti að vinna fyrir 2 árum.
 
Þegar Arnar eða Addi Óla eins og hann er yfirleitt kallaður hérna á Sigló var að vinna hjá þeim fékk hann að eiga gamla rafmagnsmæla sem hætt var að nota og átti að henda.
 
Addi sýndi mér mælana sem hann hefur safnaði í gegn um árin og það var vægast sagt gaman að skoða þá og fá fræðsluna hjá Adda í sambandi við rafmagnsmælana, klukkurnar og allt það sem því rafmagni og rafmagnsmælum fyrri ára viðkemur.
 
Einn merkilegasti mælirinn sem Addi sýndi mér var "krónumælirinn". En vafalaust eru fáir svona mælar eftir í landinu í dag. Maður setti krónu eða krónur í mælinn og fékk skammtað rafmagn á hann fyrir krónurnar sem maður setti í mælinn. Líklega er þessi mælir frá upphafi rafmagnsvæðingar á Siglufirði.
 
Það eru magnaðar heimildir sem Addi býr yfir og það væri nú alls ekki vitlaust fyrir áhugasaman mann að setjast niður með Adda og skrifa niður söguna um rafmagnsmælana og vinnu við rafmagn fyrri ára.
 
Það er svo kannski spurning hvort það vanti ekki hreinlega bara safna-safn á Siglufjörð. Það er fjöldi smásafna hingað og þangað um bæinn sem sárvantar framtíðarheimili sem gestir geta heimsótt og skoðað. 

Ef það eru einhverjir sem eru með safn sem þeir vilja sýna okkur þá væri vel þegið að fá að skoða og vera með smá umfjöllun um það hérna á siglo.is 
 
Hér fyrir neðan eru myndir af rafmagnsmælunum og verkfærum sem voru notuð hér áður fyrr.
 
addi ÓlaNeðstar á þessari mynd fyrir neðan mælana eru svokallaðar rofklukkur sem voru notaðar til að stýra rafmangshita og götuljósum.
 
Addi ÓlaRafmagnsmælar í safninu hans Adda.
 
Addi ÓlaOg meira af mælum.
 
Addi ÓlaÚtvarpið á myndinni er svokallað bilanaleitartæki. Þá var farið með tækið á staði þar sem kvartað var undan útvarpstruflunum og bilanaleit gerð á því svæði þar sem útvarpstruflanirnar voru.
 
Addi ÓlaSvokallaður Megger. Megger finnur útleiðslu á rafkerfum.
 
Addi ÓlaNeðst til hægri er Mælabrú. Mælabrú var notuð til að finna stórvægilegar bilanir á rafstrengjum. Tækið til hægri er tæki sem notað var til að mæla spennaolíu en spennaolía var og er notuð á spenna sem spennti rafmagnið niður fyrir notkun í bænum.
 
Addi ÓlaTækið með snúningshjólinu er kallað mótstaða og tilheyrir Mælabrúnni.
 
Addi ÓlaCosínus fí mælir. Þetta er mælir sem mælir svokallaðann Cosinus sem myndast í rafmagnsstrengjum við mikla notkun.
 
Addi ÓlaVoltmælir.
 
Addi ÓlaKlukkurnar.
 
Addi ÓlaHérna heldur Addi á eirstálvír sem notaður var í línuna yfir Siglufjarðarskarð.
 
Addi ÓlaHér er svo önnur mynd af eirstálvírnum
 
Addi ÓlaHér er meira af mælum.
 
Addi ÓlaHér eru rafmansmælar sem líklega fóru aldrei í notkun. Efri mælirinn er breskur og sá neðri rússneskur.
 
Addi ÓlaOg hérna er svo aðal gullið hans Adda. En þetta er svokallaður krónumælir og er líklega frá fyrstu dögum Rafveitu Siglufjarðar. Maður setti krónu eða krónur í mælinn og fékk skammtað rafmagn fyrir það.
 
Magnað safn hjá honum Adda og skemmtilegt að spjalla við hann um þetta. Addi er hafsjór fróðleiks í sambandi við rafmagnið á Siglufirði og kann ótrúlegan fjölda af sögum sem þyrfti að skrá niður.
 

Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst