Rauðka gefur slökkviliðinu lit
Auk þess lagði málningarverkstæðið sitt af mörkum við að útvegaða málninguna á góðum kjörum. Þá komu Ámundi og Örlygur, nágranni hans, að litavali hússins ásamt hönnuðum Rauðku.
Málningarverkstæðið tók strax til handa við að mála þakið en Veraldavinir og starfsmenn Rauðku réðust síðan í að mála húsið í morgun. Lokið verður við að mála húsið eftir helgi en gulur litur þess kallar á aðra umferð. Verkefnið er fyrsti þáttur í hugmyndum fyrirtækisins um litgreiningu miðbæjarins sem er orðin bæjarbúum góðkunn, og er nú að verða að veruleika, en mikil samstaða hefur myndast um það af hagsmunaaðilum.
Athugasemdir