Rauðka gefur slökkviliðinu lit

Rauðka gefur slökkviliðinu lit Rauðka ehf afhenti í gær slökkviliði Siglufjarðar málningu á slökkvistöðina í þökk fyrir vel unnin störf við brennu og

Fréttir

Rauðka gefur slökkviliðinu lit

Veraldavinir að mála. Ljósmynd; Finnur Yngvi Kristinsson
Veraldavinir að mála. Ljósmynd; Finnur Yngvi Kristinsson
Rauðka ehf afhenti í gær slökkviliði Siglufjarðar málningu á slökkvistöðina í þökk fyrir vel unnin störf við brennu og niðurrif Sunnubrakka. Mynduð var góð samvinna um verkið og gefur Málningarverkstæðið ehf. vinnu sína við málningu á þaki stöðvarinnar.

Auk þess lagði málningarverkstæðið sitt af mörkum við að útvegaða málninguna á góðum kjörum. Þá komu Ámundi og Örlygur, nágranni hans, að litavali hússins ásamt hönnuðum Rauðku.

Málningarverkstæðið tók strax til handa við að mála þakið en Veraldavinir og starfsmenn Rauðku réðust síðan í að mála húsið í morgun. Lokið verður við að mála húsið eftir helgi en gulur litur þess kallar á aðra umferð. Verkefnið er fyrsti þáttur í hugmyndum fyrirtækisins um litgreiningu miðbæjarins sem er orðin bæjarbúum góðkunn, og er nú að verða að veruleika, en mikil samstaða hefur myndast um það af hagsmunaaðilum.


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst