Reiðhjóladagur Lionsklúbbs Siglufjarðar
sksiglo.is | Almennt | 14.05.2010 | 15:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 408 | Athugasemdir ( )
Laugardaginn 15. maí tekur Lionsklúbbur Siglufjarðar að sér að gera við reiðhjól fyrir áhugasama gegn vægu gjaldi. Verða klúbbmeðlimir í Lionshúsinu milli klukkan 11-14.
Gummi Eggerts, sem fer fyrir verkefninu, segir að eftir að það sást til hans gera við hjól fyrir utan heima hjá sér hafi margir foreldrar komið á tal hann um að gera við reiðhjól barna sinna, enda farið að vora og hjólum farið að fjölga ört á götum bæjarins. Datt honum þá í hug að bregða á það ráð að klúbburinn tæki þetta að sér fyrir fólk.
Lionsklúbburinn hefur samið við SR um að allir helstu varahlutir verði tiltækir á svæðinu og ætti viðgerð hjóla því að geta gengið hratt og vel fyrir sig.




Athugasemdir