Reiðhjóladagur Lionsklúbbs Siglufjarðar

Reiðhjóladagur Lionsklúbbs Siglufjarðar Laugardaginn 15. maí tekur Lionsklúbbur Siglufjarðar að sér að gera við reiðhjól fyrir áhugasama gegn vægu

Fréttir

Reiðhjóladagur Lionsklúbbs Siglufjarðar

www.siglo.is (16-nn-0473-01)
www.siglo.is (16-nn-0473-01)

Laugardaginn 15. maí tekur Lionsklúbbur Siglufjarðar að sér að gera við reiðhjól fyrir áhugasama gegn vægu gjaldi. Verða klúbbmeðlimir í Lionshúsinu milli klukkan 11-14.

 

Gummi Eggerts, sem fer fyrir verkefninu, segir að eftir að það sást til hans gera við hjól fyrir utan heima hjá sér hafi margir foreldrar komið á tal hann um að gera við reiðhjól barna sinna, enda farið að vora og hjólum farið að fjölga ört á götum bæjarins. Datt honum þá í hug að bregða á það ráð að klúbburinn tæki þetta að sér fyrir fólk.
Lionsklúbburinn hefur samið við SR um að allir helstu varahlutir verði tiltækir á svæðinu og ætti viðgerð hjóla því að geta gengið hratt og vel fyrir sig.

Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst