Rjúpnaveiði í sumarbústaða- og íbúðabyggð

Rjúpnaveiði í sumarbústaða- og íbúðabyggð Það spurðist í dag að lögreglan hefði stöðvað tvo menn á vélsleða sem skotið hefðu rjúpur við trjágarða austan

Fréttir

Rjúpnaveiði í sumarbústaða- og íbúðabyggð

Ein er inn í garði ...  Mynd: Steingrímur Kristinsson
Ein er inn í garði ... Mynd: Steingrímur Kristinsson
Það spurðist í dag að lögreglan hefði stöðvað tvo menn á vélsleða sem skotið hefðu rjúpur við trjágarða austan fjarðar.  Ekki var hægt að sanna beint  verknaðinn að svo stöddu en merki um að tveir fuglar hafi verið skotnir voru augljós á staðnum, sagði Guðbrandur Ólafsson varðstjóri.  Vildi hann taka það skýrt fram að öll skotveiði er bönnuð í firðinum innan Selgils á Hvanneyrarströnd og vitans á Selvíkurnefi – og gilti það sama um fjöllin innfjarðar þar sem skíða- og útivistarfólk á allan rétt á öryggi og friði.
 Frést hefur af og til af skotglöðum byssumönnum í Skógræktinni  í Skarðdal og ber okkur að fordæma slíkt athæfi harðlega. Ef ekki er tekið á þessum málum má spyrja hvenær skotveiðin byrji hér í bænum þar sem hópar af rjúpum hafa haldið til og glatt fólk undanfarna vetur. Er það óskandi að lögregluþjónar okkar gangi ákveðið fram og svipti menn byssuleyfi sem brjóta lög og virða ekki almenn öryggismál og að einhverstaðar megi rjúpan eiga griðland.

Athugasemdir

18.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst