Róbert verðlaunaður fyrir brautryðjendastarf

Róbert verðlaunaður fyrir brautryðjendastarf Róbert Guðfinnsson, fjárfestir, hlaut í dag verðlaun frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir brautryðjendastarf á

Fréttir

Róbert verðlaunaður fyrir brautryðjendastarf

Róbert Guðfinnsson - Morgunblaðið/Ómar
Róbert Guðfinnsson - Morgunblaðið/Ómar

Róbert Guðfinnsson, fjárfestir, hlaut í dag verðlaun frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir brautryðjendastarf á Siglufirði. Meðal verkefna sem Róbert hefur komið að á Siglufirði er uppbygging á veitingasölu og samkomuhúsum í gömlum stíl í bænum, en einnig var nýlega hafist handa við uppbyggingu hótels þar við höfnina.

Þá eru uppi áform um að byggja lyfjaverksmiðju í húsnæði bátaverksmiðjunnar, nýjan golfvöll og bæta skíðasvæði bæjarins. Á bakvið þessi verkefni stendur Róbert, en hann kom áður að rekstri Þormóðs Ramma og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.

Fréttin er tekin beint af mbl.is - en örlítið leiðrétt.


Athugasemdir

28.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst