Róbert verðlaunaður fyrir brautryðjendastarf
Róbert Guðfinnsson, fjárfestir, hlaut í dag verðlaun frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir brautryðjendastarf á Siglufirði. Meðal verkefna sem Róbert hefur komið að á Siglufirði er uppbygging á veitingasölu og samkomuhúsum í gömlum stíl í bænum, en einnig var nýlega hafist handa við uppbyggingu hótels þar við höfnina.
Þá eru uppi áform um að byggja lyfjaverksmiðju í húsnæði bátaverksmiðjunnar, nýjan golfvöll og bæta skíðasvæði bæjarins. Á bakvið þessi verkefni stendur Róbert, en hann kom áður að rekstri Þormóðs Ramma og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.
Fréttin er tekin beint af mbl.is - en örlítið leiðrétt.
Athugasemdir