Strandblakvöllur á Siglufirði ?

Strandblakvöllur á Siglufirði ? Strandblaksvallarnefnd blakklúbba á Siglufirði, hefur sótt um leyfi til að byggja strandblakvöll við Túngötu á Siglufirði.

Fréttir

Strandblakvöllur á Siglufirði ?

Strandblak á Sigló ?
Strandblak á Sigló ?
Strandblaksvallarnefnd blakklúbba á Siglufirði, hefur sótt um leyfi til að byggja strandblakvöll við Túngötu á Siglufirði.

Það sem vakir fyrir klúbbnum er að koma upp velli sem hægt er að leika á yfir sumartímann, með aðgengi fyrir alla er vilja stunda blak.

Fyrirhuguð staðsetning vallarins er á lóð í eigu AFL Sparisjóðs og Fjallabyggðar við Túngötu.

Eingöngu er verið að biðja um leyfi fyrir lóðina tímabundið og hefur frístundanefnd samþykkt erindið auk þess sem  skipulags- og umhverfisnefnd og tók nefndin vel í erindið, en vildi að málið færi í grenndarkynningu til húseigenda í nágrenninu.

Þetta er skemmtileg hugmynd og flott framtak, það getur myndast mikil stemning í kringum svona standblakvelli og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst