Strandblakvöllur á Siglufirði ?
sksiglo.is | Almennt | 31.08.2010 | 08:13 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 658 | Athugasemdir ( )
Strandblaksvallarnefnd blakklúbba á Siglufirði, hefur sótt um leyfi til að byggja strandblakvöll við Túngötu á Siglufirði.
Það sem vakir fyrir klúbbnum er að koma upp velli sem hægt er að leika á yfir sumartímann, með aðgengi fyrir alla er vilja stunda blak.
Fyrirhuguð staðsetning vallarins er á lóð í eigu AFL Sparisjóðs og Fjallabyggðar við Túngötu.
Eingöngu er verið að biðja um leyfi fyrir lóðina tímabundið og hefur frístundanefnd samþykkt erindið auk þess sem skipulags- og umhverfisnefnd og tók nefndin vel í erindið, en vildi að málið færi í grenndarkynningu til húseigenda í nágrenninu.
Þetta er skemmtileg hugmynd og flott framtak, það getur myndast mikil stemning í kringum svona standblakvelli og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.

Athugasemdir