Siglfirðingafélagið styrkir Fríðu um 50kg af lopa

Siglfirðingafélagið styrkir Fríðu um 50kg af lopa Stjórn Siglfirðingafélagsins ákvað á fundi í gær að styrkja verkefni það sem þú hefur svo myndarlega

Fréttir

Siglfirðingafélagið styrkir Fríðu um 50kg af lopa

www.frida.is
www.frida.is

Stjórn Siglfirðingafélagsins ákvað á fundi í gær að styrkja verkefni það sem þú hefur svo myndarlega haft forgöngu um: Að virkja alla sem prjónum geta valdið og prjóna 17 km trefil eða jafnlangan Héðinsfjarðargöngum og vegum þeim tengdum.

 

Siglfirðingafélagið verður 50 ára á næsta ári og fannst okkur því tilvalið að gefa sem næmi 50 kg af lopa.

Siglfirðingafélagið óskar þér velfarnaðar í verkefninu sem eflaust á eftir að rata í heimsmetabækur og halda nafni Fjallabyggðar og Héðinsfjarðarganga á lofti um ókomna tíð.


fh. Siglfirðingafélagsins

Gunnar Trausti
ritari


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst