Siglfirðingafélagið styrkir Fríðu um 50kg af lopa
Stjórn Siglfirðingafélagsins ákvað á fundi í gær að styrkja verkefni það sem þú hefur svo myndarlega haft forgöngu um: Að virkja alla sem prjónum geta valdið og prjóna 17 km trefil eða jafnlangan Héðinsfjarðargöngum og vegum þeim tengdum.
Siglfirðingafélagið verður 50 ára á næsta ári og fannst okkur því tilvalið að gefa sem næmi 50 kg af lopa.
Siglfirðingafélagið óskar þér velfarnaðar í verkefninu sem eflaust á eftir að rata í heimsmetabækur og halda nafni Fjallabyggðar og Héðinsfjarðarganga á lofti um ókomna tíð.
fh. Siglfirðingafélagsins
Gunnar Trausti
ritari




Athugasemdir