Siglómótið 2013

Siglómótið 2013 Siglómótið í blaki er orðið einn af stóru viðburðunum hér í Fjallabyggð. 30 lið mættu til leiks að þessu sinni og rúmlega 200 keppendur

Fréttir

Siglómótið 2013

Siglómótið í blaki er orðið einn af stóru viðburðunum hér í Fjallabyggð.
30 lið mættu til leiks að þessu sinni og rúmlega 200 keppendur voru mættir til leiks snemma á laugardagsmorguninn og spilað var í báðum Íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar.

Flest liðin voru frá Norðurlandi en vinir okkar frá Fylki og Þrótti létu sig ekki vanta frekar en fyrri daginn. Blakfólk vill þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn við að gera mótið sem allra best og þar ber sérstaklega að nefna starfsfólk Íþróttamiðstöðvanna.

Það hefur skapast sú hefð að hafa verðlaunaafhendinguna í Bátahúsi Síldarminjasafnsins en með því vilja blakarar sýna gestum sínum eitt glæsilegasta safn í heimi.

Mótinu var svo slúttað með glæsikvöldverði á Kaffi Rauðku og hinni mögnuðu tónlistarveislu sem nefnist 80s-show og Tröllaskagahraðlestin flutti við mikinn fögnuð viðstaddra.
 
Hyrnumenn og súlumeyjar

Mikið af myndum frá mótinu má sjá hér.


Athugasemdir

28.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst