81 ár í dag miðvikudaginn 28. ágúst frá vígslu Siglufjarðarkirkju

81 ár í dag miðvikudaginn 28. ágúst frá vígslu Siglufjarðarkirkju Í dag eru komin 81 ár frá því að Siglufjarðarkirkja var tekin í notkun.

Fréttir

81 ár í dag miðvikudaginn 28. ágúst frá vígslu Siglufjarðarkirkju


 
Í dag eru komin 81 ár frá því að Siglufjarðarkirkja var tekin í notkun. 
 
Undirbúningur fyrir bygginguna hófst sumarið 1930.
 
Árni Finsen var arkitekt að kirkjunni og yfirsmiður var Sverrir Tynes.
 
Gröftur fyrir grunn kirkjunnar hófst í maí 1931 og steypuvinna hófst í júní sama ár.
 
Kirkjan var nálægt því að vera fokheld í ágúst 1931 og steypuvinnu lokið. Kirkjan var svo fullsmíðuð um veturinn.
 
Kirkjubekkir voru smíðaðir af Ólafi Ágústsyni á Akureyri.
 
Sparisjóður Siglufjarðar gaf svo orgelið og kirkjuklukkurnar og er stærri kirkjuklukkan talin vera um 900 kíló.
 
Kirkjuturninn er um 30 metra hár. Kirkjan sjálf er um 35 metra löng og 12 metrar á breidd. 
 
Siglufjarðarkirkja tekur 400 manns í sæti.

Vígsludagur Kirkjunnar var 28. Ágúst 1932.
 
Heimildir : Bókin Siglufjarðarkirkja, Afmælisrit gefið út af sóknarnefnd Siglufjarðarkirkju árið 1982.

Athugasemdir

04.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst