Skemmtiferðaskip á laugardaginn

Skemmtiferðaskip á laugardaginn Skemmtiferðaskipið Caledonian Sky er væntanlegt til Siglufjarðar á ný laugardaginn 25. ágúst nk. Skipið leggst að

Fréttir

Skemmtiferðaskip á laugardaginn

M/S Caledonian Sky
M/S Caledonian Sky

Skemmtiferðaskipið Caledonian Sky er væntanlegt til Siglufjarðar á ný laugardaginn 25. ágúst nk. Skipið leggst að bryggju um miðan dag og staldrar við til miðnættis.

Farþegum verður boðið í sögugöngu um bæinn, og í heimsókn á Síldarminjasafnið þar boðið verður upp á síldarsöltun, síldarsmakk og Brennivínstár. Um klukkan 17:30 síðdegis verður formlegri dagskrá farþega lokið og hafa þeir frjálsan tíma fram á kvöld. Þá má ætla að þeir gangi um bæinn í leit að minjagripum, vinnustofum, kaffihúsum og öðru áhugaverðu.

Eru því verslunareigendur, listamenn og kaffihúsaeigendur hvattir til að hafa verslanir sínar og vinnustofur opnar fram á kvöld laugardaginn 25. ágúst nk. Gott er að setja skilti við útidyr, friðarkerti, eða ljós í glugga, svo það verði sýnilegt að það sé opið.

Texti: Aðsendur

Mynd: GJS




Athugasemdir

17.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst