Skíðaferð í Skarðsdal
sksiglo.is | Almennt | 21.12.2013 | 09:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 572 | Athugasemdir ( )
Síðastliðinn sunnudag skelltum við okkur fjölskyldan á skíði í Skarðinu.
Það þarf varla að taka það fram, og það vita það
líklega flest allir sem áhuga hafa á skíðum að þetta er eitt glæsilegasta skíðasvæði landsins.
Egill Skarðsprins og hans menn sjá um að hafa allt nákvæmlega eins og
það á að vera.
Ein í fjölskyldunni er fjögurra ára gömul og er að stíga
sín fyrstu skíða-skref ef svo mætti segja. Við fórum með hana alla leið upp í T-lyftunni sem er lyfta númer 2 á
skíðasvæðinu og er að mínu mati mjög góð byrjendabrekka þannig að ég mæli með því að fara upp í
miðja T-lyftu ef þú ert að kenna barni (eða fullorðnum) á skíði.
Þar sem dóttir mín og ég höfum svipaðan
þolinmæðisstuðul þá lét ég unnustuna sjá um kennsluna. Ég tók hins vegar myndir og myndband svo ég gæti sýnt
henni Ólöfu minni, svona heima í tölvunni hvað hún væri að gera vitlaust í sambandi við kennslu á skíðum.
Veitingarnar hjá foreldrafélagi Skíðafélagsins voru ekki af verri endanum
og Maggi í SR sá um að raða fram ástarpungum,kleinum, muffins, samlokum og ég veit ekki hvað.
Færið var æðislegt, vel troðið og ekta skíðaveður, kalt og
næstum því logn.
Skíðasvæðið í Skarðsdal er bara svo meiriháttar
skíðasvæði.













Athugasemdir