Sólar söngvarar
sksiglo.is | Almennt | 30.01.2014 | 15:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 364 | Athugasemdir ( )
Á sólardaginn fóru skólabörn úr Grunnskóla Fjallabyggðar og börnin úr Leikskólanum Leikskálum í göngutúr og sungu fyrir gesti og gangandi.
Krakkarnir úr Grunnskólanum stóðu í kirkjutröppunum kl. 12:30 og
sungu eins og englar.
Fyrr um morguninn sungu börnin í leikskólanum fyrir utan Sparisjóðinn og
Apótekið.
Svo er verið að vinna í myndbandi með söng barnanna sem kemur líklega inn
á morgun.
Við eigum vægast sagt glæsilegt ungt fólk í Fjallabyggð
Hér eru Grunnskólabörnin á leiðinni að kirkjutröppunum þar sem sungið var.
Leikskólabörnin fyrir utan bankann og Apótekið.
Grunnskólabörnin að syngja.
Leikskólabörnin að syngja.
Leikskólabörnin.
Að sjálfsögðu var andlitsmálning í stíl við sólina.
Þessi var meira en lítið til í að láta taka mynd af sér.
Svo voru allir búnir að föndra sólir í tilefni dagsins.



Athugasemdir