Sólstöðugangan

Sólstöðugangan Sólstöðuganga Ferðafélagsins var farin föstudaginn 24. júní. Vegna þoku var gengin Dalaleið en ekki farið norður Leirdali eins

Fréttir

Sólstöðugangan

Sólstöðuganga 2010
Sólstöðuganga 2010
Sólstöðuganga Ferðafélagsins var farin föstudaginn 24. júní. Vegna þoku var gengin Dalaleið en ekki farið norður Leirdali eins og upphaflega var áætlað. Veðurguðirnir sviku okkur um heiðan himin og fagra fjallasýn, en samt sem áður lagði hópur glaðra göngumanna af stað upp Mánárdalinn laust fyrir kl. 22:00. 

Gengið var hröðum skrefum í austanverðum hlíðum dalsins og stefndi hópurinn glaðbeittur upp í þokuna. Þokan var köld og þétt eins og við var að búast, deyfði söng fuglanna og lækjarniðinn, og faldi alla tilfinningu fyrir vegalengd og hæð.

Fyrr en varði stóðum við uppi í Dalaskarði umvafinn djúpri þögn þokunnar. Í stað þess að arka norður Leirdali í þreyfandi þokunni var gengið þvert yfir skarðið og niður Skjaldarbringur. Þegar við vorum komin niður úr þokunni var snúið til norðurs og gengið eftir hlíðum Hafnarfjalls, yfir Stóra-Bola og heim til Siglufjarðar.

Texti: Guðrún Ingimundardóttir.
Mynd: Heimasíðu ferðafélagsins.

Hér má sjá myndir úr göngunni.



Athugasemdir

08.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst