Sólstöðugangan
sksiglo.is | Almennt | 29.06.2011 | 20:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 249 | Athugasemdir ( )
Sólstöðuganga Ferðafélagsins var farin
föstudaginn 24. júní. Vegna þoku var gengin Dalaleið en ekki farið
norður Leirdali eins og
upphaflega var áætlað. Veðurguðirnir sviku okkur um heiðan himin og fagra fjallasýn, en samt sem áður lagði hópur glaðra göngumanna af stað upp
Mánárdalinn laust fyrir kl. 22:00.
Gengið var hröðum skrefum í austanverðum hlíðum dalsins og stefndi hópurinn glaðbeittur upp í þokuna. Þokan var köld og þétt eins og við var að búast, deyfði söng fuglanna og lækjarniðinn, og faldi alla tilfinningu fyrir vegalengd og hæð.
Fyrr en varði stóðum við uppi í Dalaskarði umvafinn djúpri þögn þokunnar. Í stað þess að arka norður Leirdali í þreyfandi þokunni var gengið þvert yfir skarðið og niður Skjaldarbringur. Þegar við vorum komin niður úr þokunni var snúið til norðurs og gengið eftir hlíðum Hafnarfjalls, yfir Stóra-Bola og heim til Siglufjarðar.
Texti: Guðrún Ingimundardóttir.
Mynd: Heimasíðu ferðafélagsins.
Hér má sjá myndir úr göngunni.

Athugasemdir