Sparisjóður Ólafsfjarðar sameinast Arion banka

Sparisjóður Ólafsfjarðar sameinast Arion banka Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 14. september síðastliðinn samruna Sparisjóðs Ólafsfjarðar við Arion

Fréttir

Sparisjóður Ólafsfjarðar sameinast Arion banka

Ólafsfjörður
Ólafsfjörður

Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 14. september síðastliðinn samruna Sparisjóðs Ólafsfjarðar við Arion banka á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki.

Arion banki tekur við öllum réttindum og skyldum Sparisjóðs Ólafsfjarðar og verða félögin sameinuð undir nafni Arion banka.

Unnið er að samruna Sparisjóðs Ólafsfjarðar og Arion banka og mun hann ganga í gegn síðar í mánuðinum. Samruninn verður með þeim hætti að engin röskun á að verða á þjónustu við viðskiptavini Sparisjóðsins sem áfram munu geta nýtt sín greiðslukort og þá þjónustuþætti sem þeir voru með hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar.

Markmiðið er að veita íbúum á Ólafsfirði áfram vandaða og fjölbreytta fjármálaþjónustu.

Heimasíða: http://www.arionbanki.is/
Mynd: heimasíða: http://www.spar.is/spol--olafsfjardar



Athugasemdir

19.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst