Spjallað við burtflutta mikið lesið

Spjallað við burtflutta mikið lesið Greinarnar þeirra Bigga og Leós „spjallað við burtflutta“ hafa vakið mikla lukku á Sigló.is og hafa samtals yfir

Fréttir

Spjallað við burtflutta mikið lesið

Greinarnar þeirra Bigga og Leós „spjallað við burtflutta“ hafa vakið mikla lukku á Sigló.is og hafa samtals yfir 2.300 manns lesið þær. Af þessu tilefni hafa greinarnar fengið sitt eigið svæði undir flipanum „Fróðleikur“ miðsvegar efst á síðunni en þar má nálgast þær eftir að þær hverfa af forsíðunni.

 

Burtfluttir Siglfirðingar eru greinilega vinsælt lesefni á Sigló.is og eru þær iðulega meðal mest lesna efnisins á síðunnu enda leggja þeir Birgir Ingimarsson og Leó R. Ólason mikinn metnað og tíma í gerð þeirra. Þeir kumpánar stefna á að setja inn 2-4 viðtöl í mánuði svo lesendum síðunnar getur nú hlakkað til að sjá hverjir muni sitja undir svörum og segja sögur sínar á Sigló.is í vetur.

Sigló.is er mjög þakklátt þeim félögum fyrir þeirra frábæra innlegg í síðu okkar Siglfirðinga.


Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst