Spjallað við burtflutta mikið lesið
Greinarnar þeirra Bigga og Leós „spjallað við burtflutta“ hafa vakið mikla lukku á Sigló.is og hafa samtals yfir 2.300 manns lesið þær. Af þessu tilefni hafa greinarnar fengið sitt eigið svæði undir flipanum „Fróðleikur“ miðsvegar efst á síðunni en þar má nálgast þær eftir að þær hverfa af forsíðunni.
Burtfluttir Siglfirðingar eru greinilega vinsælt lesefni á Sigló.is og eru þær iðulega meðal mest lesna efnisins á síðunnu enda leggja þeir Birgir Ingimarsson og Leó R. Ólason mikinn metnað og tíma í gerð þeirra. Þeir kumpánar stefna á að setja inn 2-4 viðtöl í mánuði svo lesendum síðunnar getur nú hlakkað til að sjá hverjir muni sitja undir svörum og segja sögur sínar á Sigló.is í vetur.
Sigló.is er mjög þakklátt þeim félögum fyrir þeirra frábæra innlegg í síðu okkar Siglfirðinga.




Athugasemdir