SR Vélaverkstæði hf á Siglufirði var stofnað árið 1935.
Fyrirtækið byggir á traustum grunni og var lengst af sjálfstæð rekstrareining innan Síldarverksmiðju ríkisins, síðar SR-Mjöls.
Frá 2003 hefur fyrirtækið verið í eigu starfsmanna verkstæðisins, auka annara aðila og rekur það einnig trésmíðaverkstæði og byggingavöruverslunina, SR – Byggingavörur ehf og gjafa- og blómaverslunina, SR-Aðalbúð. Starfsmenn hjá SR eru nú um 23 talsins.
Auk þjónustu og nýsmíði fyrir fiskimjölsverksmiðjur hefur vélaverkstæðið unnið fyrir Becromal á Akureyri og ýmis önnur fyrirtæki um land allt.
Verkefnastaða verkstæðisins er nokkuð góð um þessar mundir og er Becromal þar mjög stór þáttur.
Einnig eru verkefni fyrir Marel, Síldarvinnsluna o.fl. og í flestum tilfellum er verið að vinna úr ryðfríu stáli. Jarðgerðarvélar frá SR-Vélaverkstæði eru í notkun á Egilstöðum, Selfossi og Siglufirði en þetta eru vélar sem breyta lífrænu heimilis sorpi í moltu sem er notuð sem íblöndun í gróðurmold.
Á trésmíðaverkstæð SR hafa verði smíðuð, tunnuskýli, blómakassar og margt fleirra auk hefðbudinna trésmiða verkefna fyrir heimili og fyrirtæki.
Myndir frá heimsókninni eru hér
ljósm.GJS
Athugasemdir