Steini Vigg í slipp á Akureyri
Steini Vigg er nú farinn í slipp á Akureyri og er það síðasti hlekkurinn í að sjósetja bátinn sem frístundabát en hann verður notaður í sjóstangveiði og útsýnisferðir í Siglufirði í sumar.
Báturinn var tekinn á land á þriðjudag og er áætlað að hann verði sjósettur fyrir helgi en vikuna 10-14 maí tekur hann þátt í alþjóðlegu sjóstangveiðimóti á Dalvík. Að því loknu kemur Steini aftur í sína heimahöfn á Siglufirði þaðan sem ferðalangar geta notið að fara í sjóstöng eða aðrar skemmtisiglingar á honum. Augljóslega er mikið að gera hjá akureyringum í slippnum þessa dagana en Húni II situr nú við hlið Steina Vigg og Sylvía frá Húsavík er nýlega farin niður.
Steini Vigg er fyrsti báturinn sem Rauðka tekur í notkun fyrir skemmtisiglingar en fyrirtækið skoðar nú hvaða fleiri möguleikar eru í þeim málum.



Athugasemdir