Steini Vigg í slipp á Akureyri

Steini Vigg í slipp á Akureyri Steini Vigg er nú farinn í slipp á Akureyri og er það síðasti hlekkurinn í að sjósetja bátinn sem frístundabát en hann

Fréttir

Steini Vigg í slipp á Akureyri

Steini Vigg í slippnum á Akureyri. Ljósmyndari; FYK
Steini Vigg í slippnum á Akureyri. Ljósmyndari; FYK

Steini Vigg er nú farinn í slipp á Akureyri og er það síðasti hlekkurinn í að sjósetja bátinn sem frístundabát en hann verður notaður í sjóstangveiði og útsýnisferðir í Siglufirði í sumar.

 

Báturinn var tekinn á land á þriðjudag og er áætlað að hann verði sjósettur fyrir helgi en vikuna 10-14 maí tekur hann þátt í alþjóðlegu sjóstangveiðimóti á Dalvík. Að því loknu kemur Steini aftur í sína heimahöfn á Siglufirði þaðan sem ferðalangar geta notið að fara í sjóstöng eða aðrar skemmtisiglingar á honum. Augljóslega er mikið að gera hjá akureyringum í slippnum þessa dagana en Húni II situr nú við hlið Steina Vigg og Sylvía frá Húsavík er nýlega farin niður.

Steini Vigg er fyrsti báturinn sem Rauðka tekur í notkun fyrir skemmtisiglingar en fyrirtækið skoðar nú hvaða fleiri möguleikar eru í þeim málum.


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst