Stórheimsókn MA
sksiglo.is | Almennt | 04.11.2010 | 20:01 | Síldarminjasafnið | Lestrar 488 | Athugasemdir ( )
Í dag, fimmtudag, var 140 manna hópur frá Menntaskólanum á Akureyri í heimsókn á Siglufirði. Þetta var 1. bekkur, heill árgangur, í fimm bekkjardeildum ásamt kennurum sínum. Fóru hóparnir á milli fimm stöðva á Síldarminjasafninu, Þjóðlagasetri og kirkjunni þar sem þeir fengu viðeigandi fræðslu heimamanna. Annríkið á safninu stóð frá kl. 10 til 16 og mátti líkja við meðalheimsókn skemmtiferðaskips.
Þessi námsferð MA sýnir okkur hvaða tækifæri bjóðast Norðlendingum með komu nýju jarðganganna.
Þessi námsferð MA sýnir okkur hvaða tækifæri bjóðast Norðlendingum með komu nýju jarðganganna.



Athugasemdir