Stóri sandkassinn á Rauđku lóđinni er ađ verđa klár.

Stóri sandkassinn á Rauđku lóđinni er ađ verđa klár. Ţegar mér var litiđ út um gluggann í grćna húsinu sem er beint á móti rauđa húsinu í austurátt

Fréttir

Stóri sandkassinn á Rauđku lóđinni er ađ verđa klár.


 
Þegar mér var litið út um gluggann í græna húsinu sem er beint á móti rauða húsinu í austurátt (semsagt græna húsið er austan við það rauða og það rauða heitir Rauðka, Siglfirðingar skilja þetta vonandi) síðast liðinn þriðjudag sá ég einhverja hreyfingu í stóra sandkassanum á Rauðku lóðinni.
 
Ég ákvað að standa upp úr hægindastólnum , rölta út og tékka á þessu pari sem var að athafna sig þar. Örþreyttur rölti ég niður og út á lóð.
Þar voru Anna María og Óskar að gera strandblakvöllinn klárann.
 
Reyndar hélt ég alltaf að þetta væri sandkassi fyrir börn til að dunda sér í á meðan foreldrarnir slökuðu á í huggulegheitum við höfnina. En sá sandkassi (barnasandkassinn) er við hliðina á stóra sandkassanum (strandblaksvellinum).  
 
Fyrsti leikur sumarsins á held ég að vera í dag. 
 
 Það er alveg á hreinu að ég á einhvern daginn eftir að rústa Gulla Stebba í strandblaki á þessum strandblaksvelli.
Gulli Stebbi er nefnilega alltaf að tala um blak og strandblak og blak þetta og blak hitt, þannig að ég verð bara að þagga niður í honum með þetta. Og ef einhver býður sig fram til að hjálpa mér (vinsamlegast einhver sem er mjög góður í blaki) þá má sá hinn sami endilega hafa samband. Eftir því sem ég bezt veit þá eru 2 í liði í svona strandblaki. Allavega kom það í ljós þegar ég googlaði "women beach volleyball team in the sun" . 
 Ég mæli sterklega með því að kíkja niður á höfn , fá sér kaffi eða eitthvað sterkara fyrir þá sem það vilja, kíkja á bátana og svo auðvitað strandblakið í leiðinni.
 
Gulli Stebbi, ég er að skora á þig. (Bara einhverntíman í sumar sko, ekki alveg strax).
 
Hérna eru nokkrar myndir af Önnu og Óskari að græja völlin og svo nokkrar af strandblökurum. Magnað orð, "strandblökurum" .
 
 blak
 
 Anna og Óskar að fella netið.
 
 blak
 
Óskar.
blak 
 
Anna að segja Óskari hvernig á að gera þetta rétt.
 
 blak
Þau kunna þetta.
 
Svo koma nokkrar myndir sem ég fann á netinu af strandblaki.
blak
Ég held að þessi sé tekin á Costa del Sol.
 
blak
Örugglega Credit mótið á Spáni.
 
blak
 
blak
Braszilíska landsliðið í strandblaki.
 
Og svo nokkrar myndir af strákunum í strandblakinu.
blak
 
blak
 
 

Athugasemdir

02.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst