Styrkjum úthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar
Í gærkvöldi var styrkjum úr menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar úthlutað, en að þessu sinni var alls úthlutað 1,4m.kr.
Ólafur Jónsson hóf kvöldið með því að bjóða gesti velkomna og kynna menningarsjóðinn lítillega fyrir gestum en sjóðurinn sem upphaflega var um 15m.kr stendur í dag í 24m.kr og er því vel stæður. Þá talaði hann um mikilvægi menningar í samfélögum eins og Siglufirði og benti á að líklega ætti Siglufjörður Íslandsmet í menningarstarfi út frá mannfjölda og líklega sé það ein ástæðna þess að bærinn er svo aðlaðandi til búsetu, hér iðar allt af lífi.
Ásókn í sjóðinn var fjórfalt meiri í ár heldur en undanfarin ár og sýnir það enn betur þá miklu menningu sem í gangi er í firðinum.
Dagskrá kvöldsins var svo hin skemmtilegasta þar sem Tóti kvað vísur fyrir gesti og kynnti því næst þau áform að Ljóðasetrið skyldi opnað í júní 2011. Þá fylgdi Stúlli í kjölfarið og kvað upp vísu um hana Eyjarfjarðar Höllu.
Styrkjum var næst úthlutað og voru þeir eftirfarandi:
50.000kr var úthlutað til eftirfarandi verkefna:
Kvennasmiðjan
Steinaflatir
Trefillinn Fríðu
Skíðaminjadeild FÁUM
Meira Salt – útgáfa geisladisks
Gospelkór Siglufjarðar
Siglufjarðarkirkja vegna barnastarfs
Siglufjarðarsamban – gerð myndbands
Vinnustofa Abbýar
Vorboðar – kór eldriborgara
Heldri Menn
75þ.kr fengu
Systrafélag Siglufjarðarkirkju
Síldarminjasafnið – uppsetning skilta
100þ.kr var úthlutað til Leikfélags Siglufjarðar
150þ.kr fékk Þjóðlagasetrið til þjóðlagahátíðar og ritunnar bókar um séra Bjarna
200þ.kr var fékk Herhúsafélagið til endurbyggingar húss
250þ.kr var úthlutað til Ljóðaseturs Íslands

Tóti tekur móti 250þ.kr styrk Ljóðasetursins frá SPS




Athugasemdir