Styrkjum úthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar

Styrkjum úthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar Í gærkvöldi var styrkjum úr menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar úthlutað, en að þessu

Fréttir

Styrkjum úthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar

Styrkþegar og veitendur
Styrkþegar og veitendur

Í gærkvöldi var styrkjum úr menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar úthlutað, en að þessu sinni var alls úthlutað 1,4m.kr.

 

Ólafur Jónsson hóf kvöldið með því að bjóða gesti velkomna og kynna menningarsjóðinn lítillega fyrir gestum en sjóðurinn sem upphaflega var um 15m.kr stendur í dag í 24m.kr og er því vel stæður. Þá talaði hann um mikilvægi menningar í samfélögum eins og Siglufirði og benti á að líklega ætti Siglufjörður Íslandsmet í menningarstarfi út frá mannfjölda og líklega sé það ein ástæðna þess að bærinn er svo aðlaðandi til búsetu, hér iðar allt af lífi.

Ásókn í sjóðinn var fjórfalt meiri í ár heldur en undanfarin ár og sýnir það enn betur þá miklu menningu sem í gangi er í firðinum.

Dagskrá kvöldsins var svo hin skemmtilegasta þar sem Tóti kvað vísur fyrir gesti og kynnti því næst þau áform að Ljóðasetrið skyldi opnað í júní 2011. Þá fylgdi Stúlli í kjölfarið og kvað upp vísu um hana Eyjarfjarðar Höllu.

Styrkjum var næst úthlutað og voru þeir eftirfarandi:

50.000kr var úthlutað til eftirfarandi verkefna:
Kvennasmiðjan
Steinaflatir
Trefillinn Fríðu
Skíðaminjadeild FÁUM
Meira Salt – útgáfa geisladisks
Gospelkór Siglufjarðar
Siglufjarðarkirkja vegna barnastarfs
Siglufjarðarsamban – gerð myndbands
Vinnustofa Abbýar
Vorboðar – kór eldriborgara
Heldri Menn

75þ.kr fengu
Systrafélag Siglufjarðarkirkju
Síldarminjasafnið – uppsetning skilta

100þ.kr var úthlutað til Leikfélags Siglufjarðar

150þ.kr fékk Þjóðlagasetrið til þjóðlagahátíðar og ritunnar bókar um séra Bjarna

200þ.kr var fékk Herhúsafélagið til endurbyggingar húss

250þ.kr var úthlutað til Ljóðaseturs Íslands

Tóti tekur móti 250þ.kr styrk Ljóðasetursins frá SPS


Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst