Sýnikennsla í marineringu síldar

Sýnikennsla í marineringu síldar Sýnikennsla í marineringu á krydd- og sykursaltaðri síld, fór fram í Bátahúsinu síðastliðið fimmtudagskvöld. Hjónin

Fréttir

Sýnikennsla í marineringu síldar

Siggi Hafliða, Kristrún og Örlygur
Siggi Hafliða, Kristrún og Örlygur

Sýnikennsla í marineringu á krydd- og sykursaltaðri síld, fór fram í Bátahúsinu síðastliðið fimmtudagskvöld. Hjónin Kristrún Halldórsdóttir og Sigurður Hafliðason önnuðust kennsluna. Siggi Hafliða sýndi réttu handtökin við flökun síldarinnar og Kristrún kona hans gaf uppskriftir og góð ráð. Það var margt um manninn á Bátahúsloftinu, um 20 manns fylgdust með og fengu að sjálfsögðu að smakka á gómsætum síldarréttum Kristrúnar.

 


Sýnikennslan var í beinu framhaldi af söltuninni á Roaldsplaninu í október. Markmiðið með þessu öllu saman er að viðhalda gömlum matarhefðum okkar Siglfirðinga, en síldin spilaði stórt hlutverk í daglegri fæðu fólks hér í síldarbænum.

 


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst