Sýnikennsla í marineringu síldar
Sýnikennsla í marineringu á krydd- og sykursaltaðri síld, fór fram í Bátahúsinu síðastliðið fimmtudagskvöld. Hjónin Kristrún Halldórsdóttir og Sigurður Hafliðason önnuðust kennsluna. Siggi Hafliða sýndi réttu handtökin við flökun síldarinnar og Kristrún kona hans gaf uppskriftir og góð ráð. Það var margt um manninn á Bátahúsloftinu, um 20 manns fylgdust með og fengu að sjálfsögðu að smakka á gómsætum síldarréttum Kristrúnar.
Sýnikennslan var í beinu framhaldi af söltuninni á Roaldsplaninu í október. Markmiðið með þessu öllu saman er að viðhalda gömlum matarhefðum okkar Siglfirðinga, en síldin spilaði stórt hlutverk í daglegri fæðu fólks hér í síldarbænum.
Athugasemdir