Teikn / Sign hjá Báru

Teikn / Sign hjá Báru Bára Kristín eđa Bára Skúla ( Skúla Jóns og Ţórunnar) eins og flestir Siglfirđingar ţekkja hana opnađi sýninguna Teikn / Sign í

Fréttir

Teikn / Sign hjá Báru

Teikn / Sign

Bára Kristín eða Bára Skúla ( Skúla Jóns og Þórunnar)  eins og flestir Siglfirðingar þekkja hana opnaði sýninguna Teikn / Sign  í Listagilinu á Akureyri 12. október síðast liðinn. 

Teikningarnar sem Bára er með á sýningunni eru draumkenndar, svarthvítar myndir sem bera með sér ævintýrablæ.

Bára hefur einnig samið raftónlist og hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum hér á landi og þegar Bára er í raftónlistar gírnum þá kallar hún sig Plasmabell.

Þess má einnig geta að Bára útskrifaðist frá Kvikmyndaskóla Íslands 2013 og hefur unnið við að gera teiknaðar hreifimyndir eða það sem er kallað animation.

Greinilega fjölhæf listakona hér á ferð og Siglo.is mælir með því að ef þið eigið leið um Akureyri að láta sýninguna hjá Báru alls ekki fara framhjá ykkur. Jafnvel mætti hreinlega gera sér ferð á Akureyri til þess að skoða sýningun hjá Báru.

Sýningin stendur til 27. okt.

Mynd við frétt fengin með leifi frá Báru.


Athugasemdir

02.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst