Þormóður rammi fundinn?
Fáir manngerðir munir hafa fundist enn sem komið er en þeirra á meðal er lítil stytta úr beini sem sýnir hermann við alvæpni – með hjálm á höfði, skjöld, sverð og spjót sem hann heldur þétt að sér.
Starfsfólk Síldarminjasafnsins heimsótti rannsóknarstað á þriðjudaginn, ásamt Þór Hjaltalín minjaverði á Norðvesturlandi, og var þá gantast með það að þarna væri sjálfur landnámsmaðurinn Þormóður rammi fundinn en samkvæmt Landnámu þá byggði hann bú sitt á Siglunersi.
Birna Lárusdóttir verkefnisstjóri sagði vísindamennina telja þennan fund mjög merkan en ekki yrði neitt sagt um hve gamall hann gæti verið fyrr en að aldursgreiningu lokinni. Þarna hefur einnig fundist hárkambur úr beini, vaðsteinn, spilateningur og seilarnálar úr beini.
Auk þess veita ógrynni smábeina í jörðu innsýn inn í matarræði og líf vermanna til forna. Að sögn Birnu er þessi rannsóknarstaður á Siglunesi það áhugaverður að búast má við framhaldsvinnu þeirra næsta sumar ef styrkur fæst úr fornleifasjóði, en hann styrkir núverandi rannsókn.
Hafinn er undirbúningur að sýningu í Síldarminjasafninu á þessum elstu minjum um búsetu við Siglufjörð og þróun hinna miklu verstöðva þar.
Á
ljósmynd sést hluti athuganarstaða, fyrir miðju segir Birna
Lárusdóttir frá rannsóknarvinnunni. Vinstra megin við hana er Þór
Hjaltalín og lengst til vinstri Maddý Þórðar Siglnesingur.
Síðasta mynd: Rannsóknarfólkið heima í Þormóðshúsi þar sem það dvelur: Birna Lárusdóttir, Howell Roberts frá Englandi, Ramona Harrison frá Austurríki, Anna Hellgren Svíþjóð og Sigríður Þorgeirsdóttir.
Texti og myndir: ÖK.
Athugasemdir