Þrif-hamagangur á Hóli
Þessa dagana standa yfir gróf grunn þrif á íbúðarhúsnæði Hóls eftir brunann sem varð í skemmu húsnæðisins fyrir stuttu.
Miklar skemmdir urðu á húsnæðinu, húsgögnum og öllum munum sem þar eru af völdum sóts, reyks og ösku svo ekki sé talað um lyktina. Það eru því mörg verkin sem þarf að vinna.
En það er ekki að spyrja að samstöðu og hjálpsemi fólks þegar eitthvað bjátar á. Margir boðnir og búnir að taka til hendinni og telja það ekki eftir sér.
Stefnt er á áframhaldandi vinnu í dag, áætlum að byrja um 17:30.
Við látum tveggja tíma vinnu duga hvern dag því ekki er gott loftið í húsinu.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Dagný Finns tók á þriðjudaginn er óhætt að segja að það sé hamagangur á Hóli.
Með bestu kveðju og þökkum til allra
Ella Maja
Fyrir hönd UIF
Arnar
Freyr tók til hendinni.
Þórarinn mætti að sjálfsögðu
Ómar fer létt með þetta.
Brynjar sá um gardínumálin. Enda er Brynjar annálað snyrtimenni og hefur sértaklega gaman af því að dúlla sér við
gardínu-uppsetningar.
Þessi er svolítið óskýr, en Eva sá um að syngja í þessa brunaslöngu og hafði virkilega gaman af segja sögurnar.
Brynja
er alltaf hress. Sigurpáll heldur við skófluna fyrir Brynju.
Svo miklu meira af myndum hér.
Myndir koma frá Dagný Finns.
Athugasemdir