Tónleikar í Siglufjarðarkirkju

Tónleikar í Siglufjarðarkirkju Tónleikar í Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 3. janúar kl. 20.30. Fram koma Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðla og Eyþór Ingi

Fréttir

Tónleikar í Siglufjarðarkirkju

Lára Sóley á styrktartónleikum í Siglufjarðarkirkju 29. des.
Lára Sóley á styrktartónleikum í Siglufjarðarkirkju 29. des.

Tónleikar í Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 3. janúar kl. 20.30. Fram koma Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðla og Eyþór Ingi Jónsson, harmóníum.

Mozart á moldargólfi, Schubert í sauðskinsskóm, Lizt í lopapeysu, Händel með hangikjöti og Lully lundabaggi. Þetta eru brot af hugmyndum sem túlkaðar verða á tónleikunum. Flutt verður erlend tónlist framreidd af íslenskum alþýðusið í bland við íslensk og erlend þjóðlög.

Flytjendur koma fram í þjóðbúningum og leika á fiðlu og harmóníum. Markmið tónleikanna er að viðhalda gamalli hefð, en hljóðfærin tvö hafa skipað stóran sess í alþýðutónlist Íslendinga um langt skeið. Einnig verða klassísk verk kynnt á aðgengilegan máta fyrir áheyrendum og sett í nýjan búning. Hluti tónlistarinnar verður fluttur í gömlum danstöktum, eins og t.d. polka, ræl og vals.

Lára Sóley tók þátt í styrktartónleikum í Siglufjarðarkirkju 29. des. Myndin á forsíðu er af Láru og manni hennar Hjalta.

Aðgangur er ókeypis og eru tónleikarnir styrktir af Menningarráði Eyþings."

Texti: Aðsendur

Mynd: GJS



Athugasemdir

30.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst