Tuttugasta síldarævintýrið fer vel af stað

Tuttugasta síldarævintýrið fer vel af stað Síldarævintýrið fór vel af stað um helgina með setningu sjóstangveiðimótsins á síldardögum. Veðrið lék við

Fréttir

Tuttugasta síldarævintýrið fer vel af stað

Rauðkutorg. Ljósmyndari; FYK
Rauðkutorg. Ljósmyndari; FYK

Síldarævintýrið fór vel af stað um helgina með setningu sjóstangveiðimótsins á síldardögum. Veðrið lék við mannskapinn og allir gátu fundið sér afþreyingu við þeirra hæfi.

 

Fyrri helgi Síldarævintýrisins endaði með götumarkaði á Rauðkutorgi þar sem Björn Jörundur lék fyrir mannskapinn meðan hann naut veðurblíðunnar og gæddi sér á veitingum og drykkjum frá Hannes Boy Café. Göngugatan iðaði af lífi og var stemmningin engu líkari en að vera í útlöndum sögðu gestir.

Langtímaspáin gerir ráð fyrir að um verslunarmannahelgina verði veðurblíða á Siglufirði og má því búast við fjölmenni á Síldarævintýrinu 2010 en fjölbreytt dagskráin höfðar til allra aldursflokka.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst