Tuttugasta síldarævintýrið fer vel af stað
Síldarævintýrið fór vel af stað um helgina með setningu sjóstangveiðimótsins á síldardögum. Veðrið lék við mannskapinn og allir gátu fundið sér afþreyingu við þeirra hæfi.
Fyrri helgi Síldarævintýrisins endaði með götumarkaði á Rauðkutorgi þar sem Björn Jörundur lék fyrir mannskapinn meðan hann naut veðurblíðunnar og gæddi sér á veitingum og drykkjum frá Hannes Boy Café. Göngugatan iðaði af lífi og var stemmningin engu líkari en að vera í útlöndum sögðu gestir.
Langtímaspáin gerir ráð fyrir að um verslunarmannahelgina verði veðurblíða á Siglufirði og má því búast við fjölmenni á Síldarævintýrinu 2010 en fjölbreytt dagskráin höfðar til allra aldursflokka.








Athugasemdir