Um helgina var haldið Landsmót kvæðamanna.

Um helgina var haldið Landsmót kvæðamanna. Um helgina var haldið Landsmót kvæðamanna, þar sem Landssamtök kvæðamanna voru stofnuð.

Fréttir

Um helgina var haldið Landsmót kvæðamanna.

Steindór Andersen
Steindór Andersen

Um helgina var haldið á Siglufirði Landsmót kvæðamanna, þar sem Landssamtök kvæðamanna voru stofnuð.

Í Bláa-húsi Rauðku var í gær umræða um fyrirhuguð lög Landssamtakanna.
Farið var yfir greinar laganna og greidd atkvæði um þau, hvernig samtökin ætla að ná markmiðum sínum, hvenær aðalfundir verða og annað þess háttar.

Kl 10 í dag, sunnudag, hefst svo formlegur stofnfundur Landssamtakanna sem munu heita Stemma.

Þarna voru saman komnir félagar frá kvæðamannafélögum víðsvegar af landinu.
Formenn Árgala Selfossi, Gefjunnar á Akureyri, Iðunnar í Reykjavík, Rímu á Siglufirði, umboðsaðili Kvæðamannafélagsins Vatnsnesingur, og formaður Félags ljóðaunnenda á Austurlandi.

Að öllum líkindum verða a.m.k. 6 félög stofnaðilar að samtökunum.


Athugasemdir

28.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst