Upplýst um nafnið á spennusögu Ragnars Jónassonar

Upplýst um nafnið á spennusögu Ragnars Jónassonar Bókin sem kemur út hjá Bókaforlaginu Veröld í haust hefur hlotið titilinn Snjóblinda, en sagan gerist

Fréttir

Upplýst um nafnið á spennusögu Ragnars Jónassonar

Ragnar Jónasson
Ragnar Jónasson
Bókin sem kemur út hjá Bókaforlaginu Veröld í haust hefur hlotið titilinn Snjóblinda, en sagan gerist að vetrarlagi á Siglufirði og er líklega fyrsta sakamálasagan þar sem bærinn er notaður sem sögusvið.

Ragnar las nýverið uppúr bók sinni í þjóðlagasetrinu á Siglufirði við góðar undirtektir þeirra fjölmörgu gesta sem mættir voru á upplesturinn.



Í tilkynningu frá Veröld kemur fram að sagan gerist að stærstum hluta að vetri til í þessum fagra kaupstað við nyrsta haf sem getur orðið býsna ógnvekjandi fyrir aðkomumann þegar snjónum kyngir niður, ófærð stöðvar allt - og myrkrið hvolfist yfir.

Upplesturinn um daginn lofaði svo sannarlega góðu og ljóst er að margir vilja vita meira um afdrif unga lögreglumannsins á Siglufirði.

Tengd frétt: Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist á Siglufirði

Tilkynninguna frá Veröld má sjá á heimasíðu þeirra.

 





Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst