Úrslit í Ísmóti Gnýfara

Úrslit í Ísmóti Gnýfara Um helgina var haldið árlegt Ísmót Hestamannafélagsins Gnýfara á Ólafsfjarðarvatni, þar sem veðrið lék við keppendur og

Fréttir

Úrslit í Ísmóti Gnýfara

Gnýfarafáninn blakti í golunni.
Gnýfarafáninn blakti í golunni.

Um helgina var haldið árlegt Ísmót Hestamannafélagsins Gnýfara á Ólafsfjarðarvatni, þar sem veðrið lék við keppendur og mótsgesti, logn, 5 stiga hiti og þurrt. Ísinn var skafinn í á föstudag og brautin var eins og best verður á kosið.

Keppt var í tölti og skeiði.
Þátttakendur voru 21 í tölti og 6 í skeiði.

Úrslit í tölti voru eftirfarandi:

1. Mattías Eiðsson, betur þekktur sem Matti Eiðs, á Vöku frá Hólum, með einkunina 7.5 

2. Magnús Bragi Magnússon, betur þekktur sem Maggi Magg, á Hugleik frá Fossi, með einkunina 7.0

3. Þorbjörn Hreinn Mattíasson, betur þekktur sem Lúlli Matt, á Hroll frá Grímsey, með einkunina 6.83

4. Guðmar Freyr Magnússon á Frama frá íbishóli, með einkunina 6.5

5. Gunnlaugur Atli Sigfússon, betur þekktur sem Atli Fúsa, á Krumma frá Egilssá, með einkunina 6.33

Fimm efstu knapar í tölti
Fimm efstu knapar í tölti.


Að lokinni verðlaunaafhendingu riðu knaparnir eina sigurferð og hér má sjá þrjá efstu knapa kveðja svellið á þessum góða degi.

Frá vinstri talið: Lúlli Matt, Maggi Magg og Matti Eiðs.


 

Úrslit í skeiði voru sem hér segir:

1. Svavar Örn Hreiðarsson betur þekktur sem Svabbi Hreiðars á Jóhannes Kjarval, á tímanum 8.78.

2. Þorbjörn Hreinn Mattíasson betur þekktur sem Lúlli Matt á Djásn frá Tungu, á tímanum 8.97. 

3. Anna Kristín Friðriksdóttir á Svarti Svanur frá Grund, á tímanum 9.15. 

4. Guðmar Freyr Magnússon á Fjölnir frá Sjávarborg, á tímanum 9.22. 

5. Sveinbjörn Hjörleifsson á Sól frá Dalvík á 11.53 

Fimm efstu knapar í skeiði.
Fimm efstu knapar í skeiði.

Sjá einnig vefsíðu Hestamannafélagsins Gnýfara


Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst