Victor Ocares með listasýningu í Alþýðuhúsinu
sksiglo.is | Almennt | 12.01.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 336 | Athugasemdir ( )
Ég kom við í Alþýðuhúsinu í gær, laugardaginn 11.
janúar þar sem Victor var með sýningu á verkum sínum í Kompunni hjá Öllu Siggu.
Kompan er gallerý sem er í miðju Alþýðuhúsinu.
Verkin eru bæði skúlptúrmyndir og teikningar eða eins og hann segir
sjálfur í auglýsingu um sýninguna "Á sýningunni „Rec“ einbeitir hann sér að teikningum og skúlptúrum, skoðar
meðal annars tengslin milli sköpunar og varðveislu. Varðveislu hughrifa og streymi hugsana í tíma. Teikningar af augnblikum og spor eftir samræður úr
lífi listamannsins. "
Að sjálfsögðu voru veitingarnar ekki af verri endanum hjá Öllu og
það var þétt setið við borðið. Bæði þegar ég kom og þegar ég fór.
Flott sýning hjá Victori.
Svo eru nokkrar myndir hér fyrir neðan frá sýningunni í Alþýðuhúsinu.









Athugasemdir