Þorrablót hjá yngri deild Grunnskólans á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 03.02.2012 | 13:20 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 510 | Athugasemdir ( )
Þorrablót var haldið í morgun hjá yngri deild Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði. Sá siður hefur verið hafður í heiðri síðan 2009 að koma saman í leikfimisalnum og borða og syngja saman.
Börnin koma með þorramat að eigin vali að heiman og mátti meðal annars sjá sviðasultu, hrútspunga, harðfisk og sviðakjamma í nestiboxunum að ógleymdum hákarlinum.
Ekki var annað að sjá en að börnin hefðu góða list á matnum. Í ár var boðið upp á óvænt skemmtiatriði en það var sönghópurinn Gómar og Sturlaugur sem komu í heimsókn og skemmtu börnunum.

Ásdís Kjartansdóttir sagði frá íslenska búningnum sem hún skartaði í tilefni dagsins.

Sönghópurinn Gómar að skemmta á þorrablótinu.

Sönghópurinn Gómar og Sturlaugur Kristjánsson

Texti og myndir: GJS

Athugasemdir